Fjölskyldufyrirtækið Gull og Silfur rekur skartgripaverslun og -verkstæði við Laugaveg 52. Við leggjum áherslu á fagmennsku og persónulega þjónustu. Við leggjum áherslu á viðskiptavininn og þarfir hans. Til þess höfum við fjórar meginstoðir í rekstri okkar. Þær eru: vörurnar, sérsmíðin, viðgerðirnar og verslunin.
|
Vörur
Við bjóðum til kaups hágæða vörur sem við persónulega treystum og uppfylla okkar ströngustu gæðakröfur.
Úrval vara okkar er fjölbreytt og má sjá sýnishorn þess hér í netverslun okkar. Enn betra yfirleitt má fá með heimsókn í verslun okkar að Laugavegi 52, þar verður vel tekið á móti ykkur.
|
|
| |
|
|

|
Sérsmíði
Sérsmíðaður skartgripur er einstök upplifun að bera. Gull og Silfur hefur ávallt boðið með stolti sérsmíði í skarti og skrautmunum.
Gullsmiðir fyrirtækisins vinna náið með viðskiptavininum í öllu ferli smíðinnar, allt frá hugmynd að afhendingu. Komdu við í verslun okkar og fáðu nánari upplýsingar.
|
| |
|
|
Viðgerðir
Fagur skartmunur sem smíðaður var að natni á að endast að eilífu. Stundum vill þó svo til að nauðsynlegt er að fagmaður fari höndum um gripinn og lagfæri. Við skiljum að verðmæti djásnanna liggur í tilfinningagildi þeirra. Við leggjum metnað í endurreisn skartmuna.
Gull og Silfur hefur einhverja reynslumestu gullsmiði á vegum sínum og viðskiptavinurinn getur treyst þeim fyrir sínum dýrmætustu djásnum.
|

|
| |
|
|

|
Verslun
Í verslun okkar að Laugavegi 52 er lögð áhersla á upplifun viðskiptavinarins. Í þægilegu og glæsilegu umhverfi vonumst við til að skapa rétt andrúmsloft svo að viðskiptavinurinn njóti þess að virða fyrir sér skartgripina og geti ákveðið sig í góðu næði með faglegri aðstoð starfsfólks okkar.
Verið velkominn til okkar í Gull og Silfur, við hlökkum til að gera heimsókn ykkar að ánægjulegri upplifun.
|
|