Gull & Silfur
Gull & Silfur

Gull & Silfur leggur áherslu á fagleg og vönduð vinnubrögð svo að viðskiptavinurinn finni að hann sé í öruggum höndum.  Hér á síðunni verður komið á framfæri fróðleik um vöru okkar og þjónustu. Við vonumst til þess að það verði ykkur að gagni og að þið njótið skartgripa ykkar enn betur.


Stærð hringja:

Best er fyrir viðskiptavini sem ekki þekkja hringastærð sína að koma í verslun okkar og láta mæla stærð sína með til þess gerðum fagtólum. Gott er að hafa í huga að stærð fingra okkar tekur breytingum yfir daginn og breikka þeir eftir því sem líður á daginn. Aðrir þættir geta einnig haft áhrif á stærð fingra okkar s.s. hitastig, rakastig og vatnsinnihald líkama okkar.  Það er því alltaf góð regla að gera ráð fyrir að áætla hringastærðina rúmlega og þægilega.


Hægt er að áætla hringastærð sína með einföldum ráðum:

Ummálsaðferð; að mæla ummál hringfingurs er einfalt að gera með spotta eða slíku. Spottinn er þá vafinn um fingurinn þannig að þægilegt hald fáist, gæta þarf þess að það sé hvorki of þröngt svo að hringurinn skapi ekki óþægindi né það laust að hætta sé á að hringurinn detti af fingrinum. Þegar rétt mát hefur verið fundið er það merkt á spottann. Eftir að spottanum hefur verið vafinn af fingrinum er auðvelt að mæla lengd hans miðað við merkingar, er þá innra ummál hringsins fundið eða hringastærðin.

Þvermálsaðferð; að mæla þvermál annars hrings sem gengið hefur verið úr skugga úr um að passi. Það er gert þannig að fyrst er fundinn hringur sem gengið hefur verið úr skugga um að passi á fingurinn, það er að hringurinn sé hvorki of þröngur svo að hann skapi ekki óþægindi né hann sé það laus að hætta sé á að hann detti af fingrinum. Því næst er innra þvermál hringsins mælt, þ.e. frá innri brún að gagnstæðri innri brún. Þá er auðvelt að reikna út ummál hringsins eða hringastærðina með að margfalda þvermálið með pi (u.þ.b. 3,14).


Gull & Silfur - gullogsilfur@gullogsilfur.is - Laugavegi 52 í 101 Reykjavík - 552 0620
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is