|
 |
 |
|
Gull & Silfur er ein elsta og þekktasta skartgripaverslun landsins, staðsett í nútímalegu verslunarhúsnæði á Laugaveginum, í hjarta miðbæjarins. Fyrirtækið býr að sterkum hefðum og fagþekkingu sem myndast hefur eftir áratuga verslunarrekstur hjá þremur kynslóðum gullsmíðameistara. Þessi trausti grunnur er forsenda ímyndar fyrirtækisins til framtíðar ásamt gæðum vörunnar, frábærri þjónustu og sígildu verðmætamati.
|
| |
 |
| Frá upphafsárum fyrirtækisins í verslun okkar að Laugavegi 35. Þarna má sjá Steinþór Sæmundson ásamt ástkærri eiginkonu hans Sólborgu S. Sigurðardóttur, en fyrirtækið á upphaf sitt í starfi þeirra, ásamt sonum þeirra Sigurði og Magnúsi og starfsfólki. |
| |
|
Saga verslunarinnar nær um 70 ár aftur í tímann því frá 1940 en þá starfrækti Steinþór Sæmundsson gullsmíðameistari og faðir Sigurðar, gullsmíðaverslun og verkstæðið, Steinþór og Jóhannes á Laugaveginum. Fjölskyldan stofnaði Gull & Silfur hf. haustið 1970 og opnaði verslunina 3. apríl 1971 að Laugavegi 35. Þar var hún staðsett til ársins 2005, en þá flutti hún í núverandi húsnæði að Laugavegi 52.
|
| |
 |
|
Steinþór Sæmundsson, gullsmíðameistari vakir yfir störfum vorum.
Blessuð sé minning hans.
|
| |
|
|
 |
|