|
Verið velkominn í verslun okkar að Laugavegi 52 í hjarta miðborgarinnar. Gull & Silfur hefur rekið skartgripaverslun og verkstæði í og við aðalverslunargötu höfuðborgarinnar frá árinu 1971. Við leggjum metnað í að viðskiptavinir okkar njóti heimsóknar í verslun okkar og upplifi þar fagmennsku á fremsta mælikvarða. Starfsfólk okkar hefur áratuga reynslu af afgreiðslu skartgripa, þekking og reynsla þeirra er okkar aðalsmerki.
|
| |
|
Í verslun okkar er lögð áhersla á að viðskiptavinurinn njóti heimsóknarinnar og geti íhugað viðskipti sín í rólegu umhverfi undir handleiðslu fagfólks. Verslun á skartgrip á að vera tekin að vel yfirlögðu ráði. Ef vel er að vali staði mun skartgripurinn fylgja eiganda sínum alla ævi og verða að lokum afkomendum til minnis um ástvin.
|

|
| |
|
|
|
Við bjóðum fjölbreytt úrval skartgripa og leggjum stolt okkar í gæði vörunnar. Gullsmiðir okkar hafa hlotið fjölda viðurkenninga fyrir skartgripahönnun sína og handsmíða skartgripi eftir sérpöntun. Hvort sem erindið er að versla sér nýjan skartgrip eða að láta fagmann yfirfara kærleiksgrip geta viðskiptavinir treyst því að í Gull & Silfri er tekið vel á móti þeim.
|
|
Fólk í giftingarhugleiðingum hefur ávallt fengið góðar móttökur í verslun okkar. Giftingar- og trúlofunarhringar hafa verið eitt okkar aðalsmerki frá upphafi. Í slíkum hlutum er rétt að vanda það sem lengi á að standa og í verslun okkar gefst pörum gott næði til að skoða úrval giftingar- og trúlofunarhringa í notalegu umhverfi.
|

|
| |
|
|
Afgreiðslutímar verslunar okkar eru:
|
|
| Mánudaga til föstudaga |
10 - 18 |
| Laugardaga |
10 - 16
|
Langa laugardaga
|
10 - 17
|
| |
|