Gull & Silfur
Gull & Silfur

Gull & Silfur er sérhæfð skartgripaverslun með persónulegt viðmót. Bein samskipti við viðskiptavinina og að koma til móts við óskir þeirra er aðalatriðið. Söluvaran er yfirleitt tákn um ást, gleði og hamingju í huga viðskiptavinanna. Tímamót í lífi þeirra eru hvati viðskiptanna. Því er mikilvægt að áherslan sé á gæði vörunnar fremur en magn. Þjálfun starfsfólks þarf að taka mið af þessu og mikilvægt að sölufólk hafi ríka þjónustulund og mikla fagþekkingu. Komdu við í verslun okkar að Laugavegi 52 eða hafðu samband: gullogsilfur@gullogsilfur.is og sími 552 0620 til að fá nánari upplýsingar eða að mæla þér mót við gullsmiði okkar.

 

Gull & Silfur hefur ávallt boðið uppá sérsmíði skartgripa, þar sem hugmyndir eru teiknaðar á staðnum af meistara í náinni samvinnu með viðskiptavininum og skartgripir síðan smíðaðir eftir teikningunum. Viðskiptavinir koma með sínar eigin hugmyndir og fylgjast með smíðinni. Ferlinu lýkur ekki fyrr en þeir eru fullkomlega ánægðir. Slíkir skartgripir hafa náin tengsl við þá sem eignast og bera gripina - ævina á enda og síðar áfram hjá afkomendum.

 Rík hefð hefur skapast fyrir markvissu gæðaeftirliti en stærstur hluti vörunnar er framleiddur á staðnum. Viðskiptavinir gera sífellt auknar kröfur um gæði skartgripa. Hver einasti skartgripur er yfirfarinn af Sigurði Steinþórssyni (gullsmíðameistaranum) og lagfæringar gerðar ef einhverju er ábótavant. Gullsmíðin er blanda af listsköpun og verktækni og snýst um fagurfræði og listrænt verðmæti ekki síður en faglega staðla og vinnuaðferðir.

Allt starfsfólk tekur þátt í hugmyndaflæði og er hluti af þeirri vinnu sem á sér stað. Nýir straumar, tíska og vinnuaðferðir sæta sífelldri umræðu og endurmati með það að leiðarljósi að bæta þjónustuna og ná frekari árangri. Gull & Silfur sækir reglulega fagráðstefnur í því sjónarmiði.

  Fullt traust ríkir á milli starfsfólks sem saman myndar metnaðarfullan hóp þar sem jafnréttissjónarmið eru í hávegum höfð. Starfsfólk Gull & Silfur tekur reglulega þátt í hönnunar- og gullsmíðakeppnum þar  sem þátttaka þeirra er fyrirtækinu í hvívetna til mikils sóma. Slík samkeppni örvar jafnt sköpunargleði starfsfólks og stuðlar að framþróun í faginu.

 

   

Gull & Silfur - gullogsilfur@gullogsilfur.is - Laugavegi 52 í 101 Reykjavík - 552 0620
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is