top of page
Ný verslun opnar við Brautarholt 20 í apríl.
Það gleður okkur að geta sagt frá því að í apríl opnum við á nýjum stað, í Brautarholti 20.
Við höfum jafnframt lokað bráðabirgðaverkstæði okkar sem staðsett var á Hverfisgötunni. Við afsökum möguleg óþægindi sem lokun þessi gæti haft á einhverja og lofum að við vinnum hörðum höndum að því að gera allt tilbúið á nýja staðnum sem allra fyrst svo við getum haldið áfram að taka á móti og þjónusta viðskiptavini okkar.
Hægt er að ná í okkur gegnum gullogsilfur@gullogsilfur.is eða í síma 552-0620 á virkum dögum milli 11 og 16.
Við þökkum alla velvildina í gegnum tíðina, vonum að þið getið sýnt okkur smá biðlund næstu daga og hlökkum til að sjá ykkur á nýjum stað í apríl.
Starfsfólk og eigendur Gulls & Silfurs
Fermingar 2024
Hugmyndir af fermingagjöfum
bottom of page