(0)
  •  

    Gull & Silfur, gullsmíðavinnustofa og verslun, er fjörtíu ára um þessar mundir, stofnsett í byrjun apríl árið 1971.Alla tíð hefur félagið verið í eigu sömu fjölskyldu, en núverandi eigendur eru hjónin Sigurður G. Steinþórsson gullsmíðameistari og Kristjana Ólafsdóttir. Við hlið þeirra starfar dóttir þeirra og yngsti gullsmíðameistarinn í fjölskyldunni; Sólborg S. Sigurðardóttir. Auk þeirra má nefna gullsmiðina Einar Þórhallsson og Tómas Malmberg sem báðir setja sinn svip á handverkið á verkstæðinu. Valdís Óskarsdóttir verslunarmær hefur staðið vaktina í búðinni til áratuga. Afmælisveislan stendur allt árið 2011. Auk þess að gefa aðdáendum okkar á Facebook, demanta, ætlum við að taka upp á einhverju skemmtilegu til að auðga tímamótin og gefa þeim gildi.

     

     

  • Við látum drauma rætast...

     

    Okkur finnst mest um vert að geta smíðað eftir hugmyndum viðskiptavinanna og látið drauma rætast. Það er okkar sérgrein.Ein virtasta gullsmíðavinnustofa landsins, sem þekkt er af einstöku handbragði og listsköpun sem skilar sér í hvers konar smíði úr gulli eða öðrum eðalmálum. Við handsmíðum nánast hvað sem er en handverk okkar hefur hlotið mikið lof um víða veröld, enda vandfundið verkstæði með slíkan metnað. Listræni andinn svífur milli borða á vinnustofunni, og skiptir þá ekki máli hvort unnið er að viðgerðum eða flóknu og fínlegu handverki.Við höfum smíðað fjöldann af verðlaunagripum og gripum fyrir sérstök tilefni. Þetta eru allt frá litlum nælum í stóra gripi á stöpli eða fæti. Eins hefur gullsmiðum okkar verið fengið það hlutverk að sérsmíða skartgripi fyrir tískuviðburði í gegnum tíðina. Meðal sérgreina er handsmíði trúlofunarhringa, sem hver og einn fær sérstaka meðhöndlun á vinnustofunni. Allt gert í höndunum svo hvert par hafi sérstöðu og beri okkur fagurt vitni til framtíðar.

 

TímamótÍ tilefni 40 ára afmælisins, þann 3. apríl 2011, kynnir Gull & Silfur nýja skartgripalínu eftir Sólborgu S. Sigurðardóttur gullsmíðameistara. Nýja línan samanstendur af 10 gripum sem allir vísa í fjóra áratugsem liðnir eru frá árinu 1971. Formið er látlaust og undirstrikar tísku og strauma sem hafa farið í hringi og spegla samtímann hverju sinni. Með hringnum er vísað í upphaf og endi, sem samt er svo tímalaus.

 

 

Gull & Silfur á Facebook

Trúlofunarhringar Sjálfsagt mesta úrvalið

Handsmíðaðir hringar í sérflokki

Allt er gert í höndunum svo hvert par hafi sérstöðu og beri okkur fagurt vitni til framtíðar. Frá fyrstu tíð höfum við haldið í gamla handverkið með handsmíðinni og boðið persónulega þjónustu við val á hringum og breytingum á þeim. Þúsundir ánægðra kaupenda bera vott um góða þjónustu og hagstætt verð, enda fátt eins gefnadi fyrir gullsmið en ánægður viðskiptavinur.

Netverslun Leiðsögn

Það skal ítrekað að allar ljósmyndir hér á síðunni er birtar með fyrirvara um að viðkomandi vara sé enn fáanleg enda í flestum tilvikum um sérsmíði að ræða. Þá er enginn gripur nákvæmlega eins. Netverslunin er einföld leið til að skoða úrvalið og versla heima í stofu. Viðskiptavinir eru beðnir að hafa samband í síma 552-0620 og velja greiðslufyrirkomulag þegar heildarupphæð viðskipta liggur fyrir.